gærdagurinn minn byrjaði leiðinlega (segir maður það?).. mer leiddist svo í litla sumarfríinu mínu að eg þreif herbergi kærastans míns frá a-ö, já ég ryksugaði meira að segja rúmið. ég átti von á letidag með grey's anatomy þar sem það var ógeðslegt veður eeeen svo var ekki..
kærastinn minn er mikið fyrir að koma mér á óvart, enda elska ég það! og hann gerði það svo sannarlega í gær..
dagurinn byrjaði með ferð í reykjavík í rigningunni, í einveru!
þar sem eg sá þessa fallegu fallegu kjóla frá KALDA.
og þar sem kærastinn minn kom mér á óvart með skópari, þó svo að ég bannaði honum það! og ekki bara einhverju pari heldur foxy frá JC. (sem er sönnun fyrir þvi að hann hlustar ennþa á mig þegar eg tala um skó, ótrúlegt en satt)
svo var hann svo yndislegur að bjóða mér á nýja uppáhalds staðinn okkar, tapas, sem við vorum að smakka í fyrsta skipti fyrir tveimur vikum, vandræðalegt ég veit.
hvítlauksbakaðir humarhalar!
andarbringa!
folaldalund!
nautalund!
mwa, yndislegur dagur!
xxx